Kæru þið.

Hvurnig stendur á því að engin les það sem ég skrifa? Allavegana "kommentið" þið aldrei.Blush

Hilsen


Kæra Elli.

Mikið hefur nú verið gaman að kynnast þér. Og takk fyrir allar ábendingarnar, svo sem hrukkur, sigin brjóst, sigin maga og togaðan rass. Verki og vind, sjóndepurð  og annað sem ég man ekki eftir að hafa beðið um. En maður getur nú ekki alltaf verið að kvarta. Það er svo sem fátt sem hægt er að kvarta yfir. Kannski helst veðrið og peningaleysi. Ekki það að ég sé á skulda-horriminni. Nei, það er öðru nær. Ég  bara get ekki eytt eins og ég vil. Langar í allt. Nýtt hús, en vil ekki skulda fleiri miljónir. Ný húsgögn, en vil ekki eyða miljón. Nema þá í útlandaferð. Þá er ég alltaf til í að skuldsetja mig upp fyrir eyru. Svo langar mig í hund, en þá get ég ekki verið alltaf í útlöndum. Þetta er alveg ferlegt. Ég held að ég sé með valkvíða. Ég þekki fólk sem væri tilbúið til að sverja að það sé mynd af mér við valkvíða í orðabókinni. En ég þekki engan sem segir að í  sömu bók sé mynd af mér við orðið "gömul" .... og það getur maður þakkað fyrir. Hilsen.


Kæra vigt.

Ertu alveg að syngja þitt síðasta? Hvað á það að þíða að rjúka svona upp? Ég hef svoleiðis reynt að passa mig. Ekki fengið mér nema nokkrum sinnum á diskinn í hvert mál og ekki alveg kúffullan disk í hvert sinn. Og ekki er eins og ég sé að raða í mig Foij grasinu nema barasta í morgunverð. Ég hefi svoleiðis gúffað í mig allskonar grænmeti og ávöxtum með sósunum og ekki alltaf klára.... jú sósurnar klára ég. Ég er ekki algjör dóni. Nammi ét ég ekki nema bara á kvöldin eða nóttinni, þegar engin sér til. Og það vita allir að hitaeiningar sem maður innbyrðir þegar engin sér til teljast ekki með. Og í matarboðinu hjá Önnu, var búið að þeyta/steikja allar kaloríu úr, hún Anna sagði það. Og ég get sagt þér það og annað "vinur" að ekki voru fleiri hitaeiningarnar hjá henni Ingu minni. Þetta var mjög hollt, grænmeti og skyr/ávextir/vínber. Algjörlega hættu/hitaeiningalaust. Ég segi það enn og aftur....Það er ekkert að mér, það er bara eitthvað að þér.

Kæri Siggi.

Ætla bara að þakka þér fyrir mjög góða viðkynningu. Takk fyrir það sem þú gerðir fyrir mig. Það var ekki eins og þú bæðir um þakklæti, síður en svo. Þú sóttir mig og snérist fyrir mig. Og það var alltaf hægt að vera viss um að það sem maður bað þig um væri gert, þegar það átti að gerast.  Óteljandi kaffibolla höfum við drukkið. Og kex með. Óteljandi sögum höfum við hlegið af. Eins og einu sinni í Tunguhálsi þegar allir voru farnir í útkall nema þú, og þú sagðir mér þegar ég kom uppeftir að nú yrðum við að fara næst á Toyotunni minn. Það væru bara engir aðrir bílar eftir. Ég fékk  líka stundum að gera þér smá greiða. Það voru nú ekki stórir greiðar. En ég fékk nú samt vel launað. Einu sinni gafstu mér gjafabréf sem þér hafði áskotnast á þorrablóti í Þýskalandi. Og vildir endilega að ég notaði. Og þá eru ekki taldir óteljandi snúningar hjá þér með bílinn minn. Já, það er svo margt. Maður ræður bara ekki öllu í þessum heimi.

Ég bara segi bless í bili. Kveðja Gústa.

Kæri Andi.

Hefurðu yfirgefið mig? Ég er svo andlaus. Ekki samt andstutt eins og í gær þegar ég var í leikfimi.... nei þá var að líða yfir mig. Núna er ég með bómull í hausnum og nenni ekki að vera til. Í gær var þetta meira svona  eins og hnífur í maganum og hjartað hótaði að stinga af. Og svo hausinn að springa. Ætli það hafi komið fyrir? Að fólk hafi dáið úr leikfimi? Ég held að ég geti ekki dáið úr Rope-yoga. Ekki einu sinni þó að ég reyndi. Eða jú, það eru bönd!!!Crying En ég er alveg viss um að ég gæti dáið úr ofáti. Það  sem sagt gengur ekkert í megruninni. Úff. Allavegana  þá veit ég að ég verð ekki mjórri þegar ég kem frá Barse. Það er sko alveg á hreinu. Og svo er sumó um helgina. þá ætla ég að hafa Foj-gras... eins og Lýður segir. Bara ekki í morgunmat. Svo ætla ég að vatnslita svolítið og búa til einn krans og tína sveppi og ber ef hægt er. Svamla í pottinum og hafa það huggó á meðan Lebbi spilar á gítar.


Ljóð

Þó að leiðin virðist vönd,

vertu ekki hryggur.

Það er eins og hulin hönd,

hjálpi er mest á liggur.

höf ókunnur.


Lóu-ljóð.

Ljóða  litla Lóa

ef sérð þú mjóan Spóa

sem sprikklar útí móa

með litla fótinn mjóa.

Þá máttu gjarnan hóa.

Í´ann litla tófa.

En ekki máttu sóa

tíma þínum Lóa.

'i ljóta og fúla bófa.

Sem þig svo vilja prófa.

Elsku litla Lóa.

Heldur skaltu þróa

með þér mjúka þófa.

Og ekki má hann klóra.

Hjartað úr þér Lóa.

Þú verður hann að skóla

svo ekki viljann prófa

Aðrar konur,  Lóa.

Svo ef birtist önnur tófa

í ykkar mjúka móa

er grösin fara að gróa

þá skaltu í mig hóa

Ég mun þá koma Lóa

og gjarnan á hann klóra

í litla fótinn mjóa.


Afmælisræða

Elsku Gunndís.Kæra fjölskylda og aðrir afmælisgestir.Það er mér sönn ánægja að fá að standa hérna og tala um hvað systkini mín eru orðin gömul.Ég er yngst. Eins og allir sjá. Óli er elstur, og fékk allar gáfurnar. Gunndís fékk allt dúllið og blúndu dæmið, Ása lítur út eins og pabbi, og Ásta lítur út eins og mamma, og ég.... .ÉG er búin til úr afgöngum. Sem er allt í lagi því ég er ekki svona rosa gömul eins og þau hin. Og nú snúum við okkur aftur að Gunndísi. Sem er eins og allir sjá ekki orðin 60 ára ennþá. Það er ekki fyrr en á mánudaginn. Þegar maður eldist þá gerast margir skrítnir hlutir. Maður sér verr sem er náttúrulegt forvarnarafturhald svo að maður sjái ekki hrukkurnar. Maður man minna. Sem er alveg ótrúlega gott ef maður nennir ekki einhverju eða finnst bara eitthvað leiðinlegt. Heyrnin minkar, svo maður heyrir bara það sem maður vill . Þolinmæðin vex og ummálið líka. Af því að maður hefur meiri þolinmæði í að sitja lengi og borða. Og svo hefur maður meiri tíma til að sauma og prjóna og hekla og baka og elda og strauja og bæta og laga og bóna og þrífa og skúra og  rækta blóm  og hlæja og tala í símann og horfa á Myndir og hlusta á útvarpið og mála bústaðinn og fara á námskeið og taka myndir og passa barnabörnin og passa annara manna börn og  fara í gönguferðir, og drekka hvítvín . Vera í Sinawik og vera ALLTAF Í ÚTLÖNDUM. En það er ekki Gunndísi að  kenna að þurfa alltaf að vera í útlöndum. Það er börnunum hennar að kenna. Jóna Björk frumburðurinn hitti Hákan og flutti til Svíþjóðar svo að Gunndís hefur þurft nauðsynlega að skreppa þangað. Svo flutti Ingi Gauti til Odense og þá allt í einu þurfa bæði Jóna og Gunndís að skreppa þangað til að sauma gardínur og svona fyrir hann.  Þá varð Laufey Dís svo hræðilega útundan að Gunndís bara varð að skreppa með henni til Ameríku. Og svo þarf að skreppa með barnabörnunum og börnunum til spánar. Ég get bara svo svarið það að fylgjast með hvar þessi kona er stödd er  algjörlega fullt starf fyrir hann Ragnar minn sem fer nú yfirleitt alltaf með henni ef að hann bara mögulega getur. Og honum hefur sko ekki nokkru sinnið fallið verk úr hendi. Hann nefnilega smíðar og málar og grillar og skiptir um dekk, og talar í símann og fer til útlanda og er í Kiwanis, hlustar á Johnny Cash, og sagar og klippir tréin og gerir svona það sem karlmenn gera. Og hún svona meira gerir það sem konur gera og er skemmtilegt. Af því sko að Gunndísi bara finnst skemmtilegt að vera til. Og það er líka bara svo skemmtilegt að vera með henni og hlæja með henni  og tala við hana í símann í 5 klukkutíma.  Já það er sko gott að eiga Gunndísi fyrir systir.... Elsku Gunndís ... Bjarta framtíð og þína skál.  

Drykkjó.

Hvernig lýst ykkur á að hittast 15 eða 16 ágúst og fá okkur snæðing á  Þremur frökkum hjá Úlfari.Það eru allir svo uppteknir að ég held við náumst ekki saman fyrr. Meðfylgjandi er matseðillinn:Allskonar fiskur og skelfiskur og glænýjar kartöflur með og ekki án smjérs.Kolhrár hvalur í uppístungu fyrir mat.... með Engifer og soja. Tvö kg. þverskorna soðna ýsu með hömst.... hömst.... hömsum.Hægt er að fá bara einn síðan frakka af Úlfari, þrjá stutta franska kossa, franskt brauð með Bernes-sósu,einn stuttan hjá Úlfari sjálfum, þrjá langa hjá frönsku frökkunum með og án Bernes, einn síðan Úlfar löðrandi í Bernes, Einn líter Bernes með smá af frönskum og fransktbrauði, Eitt kíló Bernes með þremur fönskum kartöflum og þremur sneiðum af frönsku-Úlfabrauði,með þessu er hægt að skutla í sig frönsku eðalvíni í flöskuvís. Og drekka 2 lítra af rót-sterku og sjóðheitu  kaffi með desertinum til að kaffið nái að hræða hitaeiningarnar úr rjómanum.Í forrétt  er hægt, fyrir þá sem það vilja, að skutlast í göngutúr um hverfið. Ég mæli með ferð um bakgarða-göngustíga... og almennri legu á gluggum og grindverkjum hjá grunlausum íbúum miðbæjar.Hrein snild. Hilsen.

 


Kæra offita.

Mætti ég náðarsamlegast biðja þig að yfirgefa mig hið snarasta. Og ef ekki náðarsamlegast þá bara drullaðu þér burt. Ég hef fengið nóg af þér. Þú hefur algerlega og gérsamlega yfirtekið á mér vöxtinn. Sem var svo sem ekkert til að hrópa húrra fyrir áður. Þú hefur breytt mittinu á mér í risavaxna rúllukragapeysu á þvottabretti með Lúx sápustykki. Upphandleggjunum í Bingó-spjalda uppréttara. Rassinum á mér í pitsu með appelsínuberki. Hakan hefur fætt af sér aðra höku sem hefur aftur fætt af sér enn eina hökuna. Brjóstin á mér eru farin að skyggja á lyklaborðið og.... þegar ég sef þá þrengja þau að lungunum í mér. Ég get notað Bikiní-ið mitt sem fortjald við stærstu gerð að hjólhýsi án nettengingar. Nú bið ég þig barasta....ekki fara að benda á einhverja aðra sökudólga í þessu mál. Í alvörunni. Ég á enga sök á þessu.  Ég svona rétt narta í eina og eina steik. Gúffa í mig einni og einni máltíð á KFC með frönskum og kokteilsósu. Ég borða alltaf salat með næstum öllum osti og set sveppi í næstum allar rjómasósur. Rauðvín drekk ég ekki nema með ostum og vínberjum  í góðra vina hópi eða þá í slæmum félagsskap. Snakk og popp borða ég ekki nema þá að rækjusalatið sé búið. Og svona mætti lengi telja. Ég borða hollan mat úr öllum fæðuflokkum. Og svo drekk ég vín úr öllum heimsálfum líka. Hvítvín, Rauðvín, Rósavín og Kampavin. það er mikil fjölbreyttni í því. Cabernet Franc Cabernet Sauvignon  Chardonnay  Montepulciano Pinot Gris (eða Tokay-Pinot Gris)  Pinot Noir  Riesling  Semillion  Syrah (eða Shiraz)  Tempranillo og ef allt annað bregst þá amerískt  Zinfandel. Svo eru náttúrulega héröðin allt önnur saga.....  Allavegana... ertu að skilja mig?

Hilsen.

ps. ég skrepp núna að kaupa mér sundbol í Kringlunni. Ég reikna ekki með þér í þann bol.







« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband