Bréf til mín , frá mér.

Kæra ég. Hvernig er þetta með þig, þarftu alltaf að vera með túllann opin. Geturðu ekki einu sinni, bara einu sinni, lokað á þér þverrifunni? Hver dó og gerði þig að útvarpi allra landsmanna? Ég veit að það getur verið erfitt þegar allir hinir eru ekki á sama máli og við. En sko .... kommmon. Við vitum báðar að dj... væri nú lífið auðvelt ef við réðum öllu. Það myndi Rokka. Við værum nú fljótar að enda öll stríð, leggja svo vatn til Afríku og senda Kínverjum og Indverjum ógrynni af klósettpappír. Já, svo þyrftum við nú að gera eitthvað útaf þessu veseni í múhameðstrúarfólki. Já og Ameríka fengi gervigreind. Er þá ekki búið að leysa svona helstu vandamál? Æji já, svo þyrfti að sauma aftur þverrifuna  á honum fyrrverandi-fyrrverandi og svo rassgatið á fyrrverandi. Þá held ég að þetta væri bara nokkuð gott. Já, svo myndi ég láta taka allar hitaeiningar úr góðum mat og láta setja þær í vondan mat. Banna vont rauðvín og lögleiða fótsnyrtingu á 2 mánaða fresti. Og nudd og svo myndi ég láta stranglega banna konum að skúra. Og svo myndi ég láta einhvern finna upp þvottavél sem hengir sjálf upp og raðar fallega inní skápa. Heyrðu já, og pening sem eyðist ekki takk, nema honum sé eytt í vitleysu. Ef einhver myndi vilja eyða í vitleysu þá væri ekkert annaða að gera fyrir viðkomandi en að kaupa sér smá pening fyrir peninginn og eyða svo þeim pening í vitleysuna. Já.... þetta er nú svona það helsta.

Kæri ísskápur.

Ég hef nú svona mestmegnis verið sátt við þig. En ekki núna. Sko, hvernig getur staðið á því að það verður allt sem ég set inn í þig ónýtt. Mér öðruvísi áður brá. Það var varla að ég kæmist inn með matarpokana áður en allt var búið. Ég rétt náði að klára að setja í neðstu hilluna þegar efsta hillan var orðin tóm. Þú varst botnlaus hít. En þannig er það ekki núna. Nei hei. Nú kaupi ég samviskusamlega inn og þú sérð svo um að breyta matnum í grænmyglu á örskotsstundu.Hvað á það að þýða að gera mjólk kekkjótta??? Ég barasta spyr. Hvað er með þig??? Eins og ég hef nú verið dugleg við að passa uppá að þú offyllist ekki. Ég hef margoft farið á fætur um miðja nótt og athugað með innvolsið. Og þessar aðdróttanir vegna "hins" ísskápsins, það eru flestir vinnustaðir með ísskáp ( og þessi hérna er með klakavél en þú ert með fallegri línur ) Ég er ekki að segja að þú hafir alltaf staðið þig illa.  En sko, maður lifir ekki á fornri frægð, góði minn. Taktu þig taki. Hilsen.

ps. ég skrepp í útilegu núna um helgina og þú passar þig á meðan. Annars verða einhver ráð með refsingu.


Kæri Guð.

Þetta er ég hérna. Var svona að velta fyrir mér hvort þú gætir litið til með mér. Sko, ég ætla ekki að biðja um pjening eða gimmsteina eins og þegar ég var lítil. Ekki einu sinni þó ég hafi keypt Víkingalottó áðan. Ekki aldeilis. Ekki misskilja mig, ég er mjög þakklát fyrir allt sem ég á. Hafirðu sent mér eitthver mótlæti hef ég reynt allt sem ég get til að læra á því. Æji, ég er í áhyggjukasti. Gætirðu passað strákana mín? Og kannski skammað þann yngri aðeins? Ég er ekki að biðja þig að slá hann í höfuðið eða senda honum heimsendir á nokkurn hátt. Kannski bara næst þegar hann ætlar að borða saltkjöt og baunir, að seinka honum í matinn ( feldu bara lykilinn af bílnum ) og láta hina klára allt nema einn feitan síðubita. Úff, hann yrði að vísu alveg brjálHalo... en það er ekki eins og ég yrði fyrir því. Geturðu ekki látið hann "fatta" af hverju hann er að missa?? Ég sakna hans svo hræðilega. En heyrðu, úr því að ég er með þig á línunni, passaðu þá alla í fjölskyldunni minni og vini og vandamenn. Sáldraðu hamingjudufti yfir alla sem vilja það og lukkudufti á þá sem það þurfa. Og í öllum bænum passaðu mig líka rosalega vel, og þá helst fyrir mat. Geturðu læst matinn  inni og hennt lyklinum í átta daga fjarðlægð.Takk Takk ég vissi að ég gat reitt mig á þig.

ps. ég fann þessa vísu á skabbalút, ort af Norninni:

Fleyginn tek og tæmi hann.
trega ekki daginn þann.
Taugarnar styrki.
í svefninum kyrki
fíflið, minn fyrrum mann.


.Hilsen.


Kæri House.

Hvað meinarðu með þessu rugli í gær? Þú veist alveg að ég hef sérstakt dálæti á þér. Ég flýtti mér svoleiðis heim í gærkveldi úr gönguferðinni bara til að horfa á heilabilunarþeytinginn úr þér. . Ég var svoleiðis búin að koma mér fyrir með nýgrillaðan hamborgar í einni og T2 í  hinari fyrir framan sjónvarpið í gær, þegar þú byjar með þetta rugl. Sko, ef þú ætlar að fara að haga þér eins og "Lost" þá hætti ég með þér. Ég veit samt að þú ert ekki dauður, af því að ég sá alveg glænýjan þátt með þér hjá frænda í Odense í mars. Svo þú platar mig ekki svona. En sko..... ég hef heyrt um stráka eins og þig. Þú ert glataður "dömpari". Fyrst á að vera afskiptalaus, svo leiðinlegur og svo alveg eins og ruglhæns. ( það var einn svona sem "dömpaði" vinkonu minn með sömu aðferð ). Taktu þig saman í andlitinu og gerðu það sem þú ert að gera , ALMENNILEGA. Ekki með rassgatinu. Hilsen.

Sniglarnir-gönguhópur-útblástur.

Kæru Sniglar. Eins og alþjóð veit, er Reykjavíkur-maraþon framundan. Þar sem útblástur hefur hrjáð okkur ( sumar , ekki allar) undanfarin ár finndist mér að við ættum að taka þátt. Ég er ekkert endilega að segja að við verðum að hlaupa, nei mikil ósköp, meira bara svona að hugsa um það. Leiða hugan svona að því. Athuga hvenær þetta er og athuga með flug úr landi á sama tíma. Ég er allavegana að æfa fyrir þetta. Þá meina ég bæði þetta með flugið og hlaupið. Annars er mæting á fimmtudaginn 21 júní kl 20:00 í snigl. Sennilega sama og síðast. Hilsen.


Svar við bréfi frá sólbakaðri Systu minni.

Kæra systir.

Ekki veit ég nú um hvar þú ert brún, en hitt er þó víst að ég vona og ligg á bæn með að þú sért ekki brún á milli rasskinnana. Það, hef ég heyrt, getur verið alveg andskoti vont. Húsráðið við því , ef svo er, er að nota meiri pappír. Og helst ef á að duga, eftir allar þurftaferðir. En hitt veit ég að ég er alveg eins á litin og Síríus-súkkulaðilengja, án hnettna. Er samt með svolitlar rendur, aðalaga á spikinu á mér framanvert. Minnir doldið á súkkulaði sem hefur ofhitnað í sól. Hendurnar á mér eru eins og þær hafi ekki gert handtak í hálfan mánuð. Sem er náttúrlega rétt, ef frá er talið allur krem-áburðar þrældómurinn. Sem er til varnar því að maður verði hrukkóttur eða það sem verra er, rauður eins og írskur kommi. Það ku vera agalegt. Það veit ég fyrir víst. Að vísu ekki frá fyrstu hendi, en annari. Ástkær ástmaður minn á það til að verða þannig ef hann fer út óvarin. Og það sem er skrítnast er að þessi roði veldur allskonar skapsveiflum. Ekki samt alvarlegum. Ég hef ekki orðið vör við neina breytingu á skapi mínu við það að ég hafi brúnkað. Það er þó helst að ég staldri lengur við spegilmynd mín. Sem er að ég tel þessa dagana, ægifögur. Það getur að vísu átt aðra útskýringu, jú sjáðu til ég er orðin aðeins eldri og þá góða mín, er það þetta brjálæðislega flotta plott hjá móður náttúru. Hún lætur mann sjá verr. Alveg furðulegt.  Ef þú hefur einhverjar aðrar skoðanir á þessu máli er þér velkomið að koma hérna til mín á sunnudaginn kemur svona um 17 hundruð leytið og viðra þetta svona með þér í hljóði á meðan þú raðar í þíg afmælismatnum og horfir á mig opna pakkana frá þér og öðrum í þessari fjölskyldu sem þykir vænt um mig. Vona að þetta bréfkorn rati á þig í góðum sköpum og að þú eigir ekki eftir að eiga mann sem hrýtur alveg eins og brjáluð eymreið með slitin brjóstahaldara á balli með með Ingimari Eydal og Helenu í Sjallanum, á meðan sannleikurinn svoleiðis þýtur frammúr fingrunum á þér við lyklaborðið. Eða jú, ég bara vona það. Allavegana ef hann er jafn vænn og minn. Ég hef heyrt ( þó ég heyri næstum ekkert orðið sökum hrotna ) að það sé hægt að Jóga sig frá þessu. Veit samt ekki.

Jæja. Sé þig á sunnudaginn. Og ef ekki, sendu mér þá bara annaðhvort pjening eða Gimmsteina í ammælisgjöf.

Lofjú

Lilla


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband