11.2.2008 | 12:50
Nokkrir góðir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2008 | 14:03
Kæra systir.
Enn ert þú í stökustu vandræðum. En leitaðir að svari á réttum stað. Hjá mér, innmúraðri og löggiltri systur þinni. Spurt er: "Ég á 19,466 vildarpunkta hjá Visa.Getur þú sagt mér hvernig ég á að nýta mér þá í ferð eða gistingu eða eitthvað. Ég vil bara fara eitthvað, erlendis að sjálfsögðu samt ekki til Færeyja".Ég bara segi að ekki ertu nú illa gefin né ófríð, enda talin frekar lík mér í útliti. Það er víst. Maður verður að leita svara, þar sem svör fást. Ekki þýðir að spyrja einhvern þaungulhaus með plattfætur og snúna ökkla um inniskó og nátthúfur. Og ekki er vitlegt að spyrja gesti á dvalarheimili aldraðra sjómanna um veðurfar í Himalajafjöllum í apríl. Maður spyr þar sem svara er að vænta. Við þessum svakalegu frí-punkta vandræðum þínum eru nokkur svör. Nr: 1. Hvað með punkta nudd? Nr: 2. Þegar þú lokar augunum, sérðu þá punkta?Og sérðu þá þessa hérna punkta? Nr: 3. Er þetta punkturinn á eftir kommunni? Nr: 4. Eru þetta flokkaðir punktar?Nr: 5 Er þér eitthvað illa við Færeyinga? Nr: 6. Er punkterað á þér eða einhverjum sem þú lauslega kannast við, eða hefur mætt í kaupfélaginu hans Jóhannesar í Bónus??? Og talandi um það, verslarðu ekki allt í Bónus? Ég sá svo ægilega ódýran salernispappír þar. Og talandi um salerni... hvernig er þetta þarna hjá ykkur fyrir austan .... ég las einhvernsstaðar að það hefði fokið hús en salernið hefði eitt staðið eftir á grunninum.... alheilt. Og nýsturtaða niður. Og nú spyr ég... er þetta rétt. ps: hver var aftur spurningin hjá þér???. Hils Lilla. ppss. Ég vona að þú sért samt ekki með svona punkt
psps. Hérna er svo mynd af salerninu þvermóðskufulla. Það er nú meiri andskotans sóðaskapurinn að loka ekki salerninu eftir notkun. Á þetta fólk ekki foreldra.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2008 | 13:20
Flott ljóð.
Reistu í verki
viljans merki
vilji er allt sem þarf.
Einar Benediktsson
Kannski ég fari nú að semja frumsamið eftir sjálfan mig.
Hux hux hux.
Hilsen
Lilla ljóðskáld.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.12.2007 | 15:01
Kæru jólasveinar.
Óskaplega hlakka ég nú til að fá alla pakkana frá ykkur. Ég er alveg viss um að fæ rosalega flottar gjafir í ár. Ég hef verið mjög stillt í ár. Kannski er ég bara eftir allt að verða fullorðin. Það var þá kannski bara komin tími til. En alla vegana hef ég ákveðna hluti í huga þegar kemur að jólagjöfunum í ár. Sko...... frá þér Stekkjastaur, væri ég til í alveg rosalega flotta skó, kannski bara eins og 7 pör. Eitt par fyrir hvern vikudag. Og þú Giljagaur, er það ekki þú sem sérð um froðuna? "Hann faldi sig í básunum og froðunni stal"... bara allskonar freyðiböð og passar uppá gosið í gosinu.Og þú Stúfur, gjarnan eitthvað handa þeim sem minna mega sín. Ég veit að þú skilur þá svo vel. Þá ert það þú Þvörusleikir, gætirðu skúrað og skrúbbað og bónað svo vel að dugi næstu 2 árin. Pottaskefill..... ef þú sagir um að elda hollan og mat, þá daga sem ég nenni því ekki, en létir ekki sjá þig þá daga sem ég er í "elda stuði". Og þá Askasleikir, ert vanur að sleikja tré.... ef þú sagir um að trén í HvergerðiGerði væru falleg allan ársins hring og grasið grænt og vel snyrt. Heyrðu Hurðaskellir, nýjar hurðir í allt húsið. Líka í eldhúsið, gleymdu því ekki. Skyrgámur.... fullan gám af allskonar fallegum óþarfa takk. Já, Bjúgnakrækir! einn gám af allskonar bjúgum sem maður verður ekki feitur af og "lætur" mann ekki fá brjóstsviða. Gluggagægir.... ef þú sagir um að ég liti svona sæmilega út í framtíðinni. Pantaðir td. fyrir mig í "Ondeleringu" og þess háttar. Og sendir mér sms þegar ég ætti að mæta, mundu eftir því góði. Og þá að þér Gáttaþefur..... bara sjá um að ég lykti ekki illa og og og krem og svona vellyktandi sprey, takk. Bíddu.... já Kjétkrókur... þá að þér. Þú sérð um að ekkert brenni hjá mér á grillinu og að allt smakkist kjötlega, eins og það á að gera. Og eins að það sé alltaf til harðfiskur í ísskápnum, þú veist handa hverjum. Nú þá ert það þú Kertasníkir. Þú hefur mjög mikilvægt starf sjáðu til. Þú átt að sjá til þess að alltaf sé ljós í hjörtum og sálum manna. Ertu ekki klár á þessu?? Bíddu er þá eitthvað eftir?? Auðvitað!!! Grýla...... Ekki gefa mér neitt....Skilaðu bara því sem þú tókst.... ef einhver á hann er það ég. Þú átt Lepp Skrepp Leiðindaskjóðu. Ólst hann upp sjálf og situr uppi með ófögnuðinn... Alveg ljómandi gott á þig.. Maður skyldi varast hvers maður óskar sér... svo mikið hef ég lært. Og þá aftur að ykkur jólasveinarnir ykkar....Jóla-Hils. ykkar Lilla
Bloggar | Breytt 21.12.2007 kl. 12:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2007 | 13:10
Kæri jóladesert.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2007 | 10:22
Kæra frænka.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.11.2007 | 10:01
Kæri útgefandi.
Vegna fjölda áskoranna, hef ég ákveðið að gefa út frumsamda ljóðabók eftir sjálfan mig. Verðið hef ég ákveðið. Ein bók=1 fermetri úrvalsflísar frá ítalíu. Gætirðu tekið niður pantanir? Hilsen
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.11.2007 | 10:00
Kæri tími.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.11.2007 | 15:58
Kæra hláturgyðja.
ga says:
Hello
Ágústa says:
hæ sæta spæta
Inga says:
whats up
Ágústa says:
ég er 77 kg
Ágústa says:
bara svo þú vitir það
Inga says:
er það mikið eða lítið
Inga says:
mér finnst það rosa lítiðÁgústa says:
mér líka
Ágústa says:
en ég verð að passa mig.... annars verð ég Rúllupylsa á no time
Ágústa says:
ég át Pítu í hádeginu með Lilla
Ágústa says:
og franskar og sósu
Ágústa says:
alla sósuna
Ágústa says:
og sleikti diskinn
Inga says:
ég borðaði fiskubollur með karryrjómasósu með kókos nammi namm
Ágústa says:
ég hefði byrjað á því að sjúga rjómann úr sósunni og svo hefði ég nartað í fiskinn
Inga says:
nenni ekki að vinna í kvöld er með þú veist heilarótareitthv
Ágústa says:
og haft kókos-nammið með
Inga says:
mjög slæm
Inga says:
sorry ég er núna að tala um veikindin
Ágústa says:
þú ert mjög slæm
Inga says:
langar þig í göngu
Inga says:
mjög
Ágústa says:
ég er að fara að vatnslita
Ágústa says:
kl 19:30
Inga says:
já alveg rétt rækta listagyðjuna í þér
Ágústa says:
já....
Ágústa says:
það var hringt í mig áðan
Ágústa says:
og ég missti af símtalinu
Ágústa says:
það hefur örugglega verið einhver sem vildi kaupa listaverk
Ágústa says:
eftir mig
Inga says:
ekki spurning
Inga says:
selurðu mikið
Inga says:
Inga says:
eða ertu bara að mála fyrir þig og hvergerðigerði
Ágústa says:
hvernig hefurðu það í fætinum?
Inga says:
það var ester
Ágústa says:
nú??
Inga says:
ég er með heilavandamálin'
Ágústa says:
jæja... en hvernig er þá heilataugabólgan?
Inga says:
sko
Inga says:
nr 1
Inga says:
er með hræðilegan verk
Inga says:
sem ég kæfi með íbúfeni
Inga says:
síðan tek ég pennesillin við bakteríunum
Inga says:
og er með í maganum út af því
Inga says:
þannig að staðan er slæm
Inga says:
huh
Ágústa says:
ég held að svona hafi þetta byrjað hjá Jóni heitnum
Inga says:
og dó hann úr því
Ágústa says:
ekki fyrst
Inga says:
þetta var kannski Örlítið Ýkt því ég nennti ekki að vinna
Inga says:
var að reyna að finna að mér alla hugsanl krankleika og gekk bara vel takk fyrir
Ágústa says:
ég skil... þú ert sem sé að draga úr veikleikanum
Ágústa says:
ertu þá kannski bara helvíti hress eftir allt
Inga says:
hvað er klukkan
Inga says:
ja öll að koma til
Ágústa says:
klukkan er alveg að fara heim
Inga says:
vá hvað ég er dugleg
Inga says:
not
Ágústa says:
heilataugabólga
Inga says:
með rótarívafi
Inga says:
ekki gleyma því
Ágústa says:
nú set ég þetta spjall okkar á bloggið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.10.2007 | 16:57
Kæra húsmóðir.
Mig tekur það sárar en orð fá lýst að skrifa minningargrein um frábæra húsmóður og kærustuna hans Hafliða. En sú kona dó út um daginn. Eftir stendur kona sem er ekki kærasta neins og móðir 3 barna, ágætur starfskraftur og mikil vinkona þeirra sem hún það vill við hafa. Mikil eftirsjá er í kærustunni þar sem hún var einstaklega góður hlustandi og þoldi reiðilestur mjög vel, tók því eins og hvurju öðru hundsbiti. Það er líka sorglegur missir að tapa húsmóðurinni en samt ekki eins mikill. Af því að það er hægt að smyrja samlokur og panta Pizzur. Og svo er hægt að ganga í óhreinum fötum marga daga í röð. Nú eða kaupa ný. Og svo eru líka nýjar kærustur á hvurju strái. Margt höfum við "brallað" saman... eins og Bernessósu og étið marga osta. Og drukkið Dæjet kók. Ekki á ég nú von á að ég éti osta með nýju kærustunni hans Hafliða ef einhver er.... hvað þá að ég búi til með henni Bernes. En hitt get ég sagt ykkur að með kærustunni hans heitinni ætla ég að éta oft og mörgum sinnum. Bæði það sem hún og ég búum til og svo líka það sem er hægt að kaupa á veitingahúsum. Ég veit ekkert um það hvort að Hafliði ætlar að éta með henni Bernes... en hitt get ég sagt ykkur... að dýr yrði Hafliði allur.
Hilsen
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)