20.1.2009 | 12:50
Kæra megrun.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.1.2009 | 20:56
Kæra náttborð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.12.2008 | 15:28
Kæri kalkúni.
Þú ert draumur sérhvers manns sem er ekki að flýta sér. Maður verður að vera skipulagður í kringum þig. Taka þig á réttum tíma úr frystinum en passa um leið að þú verðir ekki "fúll" . Nudda þig að utan sem innan með sítrónu og svo aftur með salti og pipar og sérvöldum kryddum. Og svo verður auðvitað fyllingin að vera bragðgóð og falleg. Ekki með of mikið af neinu og ekki of mikil. Löðra þarf þig í sméri og vefja þig svo inní stykki svo að þú verðir ekki að svertingja á "no time" og jafnvel þurr eins og pappír. Stinga þér svo í ofninn og passa uppá að hitinn sé passlegur. Soldið eins og að vera á sólarströndu. Man samt ekki eftir að hafa heyrt um að kalkúni hafi fengið sólsting í bakarofni. En ég man nú heldur ekki allt. Þegar hér er komið sögu í elduninni er gott að vera eitthvað svona að vappa í kringum þig. Vera ekkert að fara of langt frá þér svo að maður geti ausið þig með smérinu annað slagið. Maður þarf svo sem ekkert að sitja og bíða fyrir framan ofninn. Svo þarf að sjóða innmatinn og hálsinn af þér í potti með sérvöldu kryddunum sem áður hafa verið rædd. Meðlætið stendur prútt og bíður eftir að röðin komi að því í bökuninni. En ég hef nú samt svona undirbúið meðlætið í potti áður til að stytta bökunartímann. Og þá er komið að sósunni. Hún má ekki vera of feit og ekki of mögur. Og alls ekki yfirgnæfa þig. Sósan verður að vera svona eins og góð tengdamamma... halda sig réttu megin við línuna. Og svo má hún heldur ekki vera eins og hún hafi gleymst í ljósum... dökkbrún... Nei, nei... bara svona ýfið dekkri en kjötið sjálft. Þegar að eiginlegum eldunartíma er lokið ertu tekin út úr ofninum og látin standa og jafna þig á meðan meðlætið er svo hitað í ofninum. Þá ertu loksins settur á fat og sparisteikaráhöldin, þessi flugbeittu, tekin fram og þá er bara að segja "GJÖRIÐI SVO VEL".
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2008 | 23:33
Kæri sonur.
Ef þú gáir vel sérðu að þú hefur komið ríðandi til að fá þér "heitt afmælistoddý"
"Það er laugardagskvöld, það er gleðin við völd
það var sagt mér að það væri partí hérna
sem vantar bara mig í sig. " ( Baggalútur)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2008 | 12:43
Kæra snyrtikona.
Ég get ekki þakkað þér nógsamlega fyrir meðferðina þarna um daginn hjá þér. Öll kremin sem ég gæti ekki með nokkru móti nefnt á nafn og þú löðraðir mig alla í. Ég var á tímabili í stórhættu. Ég hélt að ég myndi skjótast eins og raketta útúr nuddstólnum. En sennilega hefur hættan verið minni en ég ég hélt... þar sem ég lá algjörlega lömuð frá toppi til táar í upphituðum nuddstól og ekki ein einasta huxun fór um heilan á mér og algjörlega var slökt á allri líkamsstarfsemi nema ósjálfráðri öndun. Þegar ég leið út, eftir 2 tíma snurfus með kremum, hafði ég ekki nokkrar áhyggjur af ástandi mála. Hafði ekki einu sinni áhuga á hvað væri í kvöldmatinn. En borðaði nú samt af því að það er ekkert sem lækkar í mér matarlystina nema andlát mitt. Og þá þar sem ég sat fyrir framan fréttirnar datt mér í hug að líklega væri gott að senda ríkisstjórnina í nudd. Alla eins og hún leggur sig. En ekki Davíð. Hann getur bara farið norður og niður. Eða í lagningu og ljós.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.10.2008 | 11:54
Annað ljóð.
Ég vakna þennan morgun og vel að hann sé góður
vel að hann sé yndislegur, myrkur og hljóður
ég vel að kúra um stund og staðnæmast við það
hve stórkostlegt sé lífið ef fátt amar að.
Ég ákveð því að velja að vandamálin fá
vistuð séu hjá mér til þess eins að ljá
tilverunni ennþá fleiri tilbrigði og fleti
ég tek þeim opnum örmum svo nýtt mér þau ég geti.
Og eftir litla stund ég vel að fara á fætur
faðma þennan morgun og allar hans rætur
hita mér gott kaffi af kærleik þess ég nýt
kex smyr með osti í blöðin svo ég lít.
Að endingu ég segi við þig sem þetta lest
þetta er góður dagur, hafðu það sem best
ég óska þess að hugsanir fallegar þig finni
ég faðmlag þér sendi og kveð þig að sinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.10.2008 | 13:33
Ljóð.
Elskuleg vinkona
Elskuleg vinkona óskir þú færð
Að vegur þinn greiðfær æ verði
Nú líkur þú hluta en áfram þó rærð
Og vísdómar meiri þig herði
Þú sterk ert og karakter mikill í huga
Skoðanir fastar og ákveðni duga
Eld bæði og brennistein myndir þú vaða
Fyrir ástvini þína, svo ei nái skaða
Undir verndarvæng tekur þú málstaðinn mjúka
Ef hallar í sorgir, um kinnar vilt strjúka
Húmorinn léttur þó aldrei er fjarri
Grátur þá víkur fyrir gleðinnar garri
Hláturinn smitandi lífgar og kætir
Hvar er þú ferð, hvar er þú mætir
Sem klettur í lífinu gott til að leita
Umhyggju áttu svo gott með að veita
Hreinskilni í orðum aldrei þó særa
Virðing er borin fyrir vininum kæra
Kærleikur mikill og faðmlagið þétt
Þér leikur í höndum er þér svo létt
Til hamingju vinkona mikið mér kær
Sakna þín mun ég er ferð þú mér fjær
Hugur þó beri mitt faðmlag til þín
Umvefji ástúð þig vinkona mín
Matthías Henriksen
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.9.2008 | 17:10
Kæri morgunmatur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.9.2008 | 09:22
Kæru karlmenn.
So - if you give her any crap, you will receive a ton of shit."
Og þetta er þá einhvernvegin svona á íslensku...
Allt sem þú gefur konu, margfaldar hún.
Ef þú gefur henni eina sáðfrumu, býr hún til barn.
Ef þú gefur henni hús, býr hún til heimili.
Ef þú kaupir í matinn, eldar hún dýrindis máltíð...
Ef þú gefur henni bros, gefur hún þér hjarta sitt...
Hún margfaldar allt sem henni er gefið.
Svo ef þú ert með stæla, hellir hún yfir þig skömmum.
Og ef þú stelur einhverju frá henni....
talar hún aldrei við þig aftur... aldrei.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2008 | 12:55
Kæri sonur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)