3.12.2010 | 12:22
Iðunn og eplin
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.12.2010 | 12:12
Víkingar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2010 | 20:00
Lífið sem leikhús
Vaknaði við yndælis kaffi ilm. Betri helmingurinn hafði lagt á borð og farið í bakaríið og þar að auki farið í blómabúðina og keypt blóm. Ég settist við morgunverðarborðið í silkisloppnum eins og fínar frúr gera og bauð góðan dag með spariröddinni. Dáðist af því sem fyrir augu bar og úthellti hóli. Eftir 3 rækjusalatsbolluna var ég alveg hætt að vera eitthvað fín. Komin með blett i sloppinn og búin að ropa eins og togarasjómaður. Verð að vanda mig næst.
Eftir að vera búin að taka saman sunddótið var skroppið í Laugaskarðlaugina. Hittum Hemma Gunn í pottinum og hann sagði okkur að við værum nú aldeilis heppin að eiga heima í Hveragerði, hér væri svo góð laug. Og hvort við færum ekki á hverjum degi? Sá skárri, alltaf svo kurteis og vel upp alin laug því að við værum fastagestir. Ég rétt gat haldið andlitinu og nikkað sammála ( ég er svo góð eiginkona ) . Ómögulegt að vera með uppsteit í heitapottinum. Við höfum líka heyrt að ef fólk hagi sér ekki almennilega þar þá sé því úthýst ( ef einhver kemur á gegnsærri sundskýlu í laugina ).
Fórum svo og versluðum í matinn og ég var auðvitað með vesen og fór á kassann hjá súludansmeynni. Þegar hún er að vinna fer ég alltaf til hennar. Hún er bæði glöð og virkar hamingjusöm með vinnuna sína ( sjálfsagt vön að leika að vera glöð). Annað en krakkarnir sem ég verð þunglynd á að leyfa að afgreiða mig. Þau dæsa á mig ef ég er of lengi að setja í pokana mína. Ég myndi gjarnan vilja hafa fólk á besta aldri í afgeiðslustörfum. Það skilur mig svo vel eða leikur að því leiðist ég ekki.
Þegar heim var komið, henti ég mér upp í sófa og nennti ekki að vera neinn nema ég sjálf. Það er gott að hafa köttin með í svoleiðis verkefnum.
Kveikti á sjónvarpinu til öryggis og þóttist vera að horfa á fréttaskýringaþátt á útlensku. Ég var ekki að horfa og enn síður að hlusta. Ég var bara að gera ekki neitt. Vera ég án þess að einhver vildi eitthvað frá mér. Þegar að ég var búin að hlaða batterýin var komið að kaffitíma. Ég fór í stígvélin og setti á mig ljótu vettlingana og náði í nokkur egg út í hænsnakofa,
sinnti hænunum og bakaði nokkrar pönnukökur og svo leystum við hjónin heimsmálin yfir kaffibolla.
Krakkarnir okkar höfðu áhveðið að nú ætti þau að koma í mat til okkar. Það þýddi að ég átti að elda eitthvað gott. Ég skil svona undir rós mál og svo skilur betri það líka. Það er hann sem kaupir kók með sykri handa þeim.
Annar sonurinn borðar ekki gráðaost og tengdadóttirin borðar ekki kókos. Allir borða sushi nema betri. Svo að sushi með gráðaost og kókos kemur ekki til greina. Annar sonurinn er með smá eldunarveiki og það þarf að passa að hann fái að búa eitthvað til.
Tengdadóttirinn leggur alltaf á borð. Henni finnst það gaman og hún er líka ótrúlega góð í því. Ég elda og vel hvað á að vera í matinn. Betri gengur frá eftir mig og svo þegar það er komið að gjöriði svo vel. Setjast allir í sín sæti. Eftir matinn slást krakkarnir um hver eigi að vaska upp. Misskildu mig ekki, engin þeirra vill það. Betri lítur á þau ástaraugum og segir að nú sko gangi hann frá. Þau séu búin að vera svo dugleg. Hann og uppþvottavélin eru í sérlegu sambandi. Karlmaðurinn og tækið.
Þegar við erum búin að spila eitthvert spil er komið að desertinum. Hann róar líka öldurnar. Betri segir okkur endalaust að hann sé alveg rosalega lélegur í spilum. Hann vinnur okkur alltaf en við trúum honum samt þegar að hann segir að þetta hafi bara verið heppni, algjört slys! Þá er komið að því að börnin fari til síns heima og og við hjónin að sofa.
Á svona venjulegum helgardegi eru mörg hlutverk í leikin. Það er eiginkonan undirgefna, frúin í silkisloppnum og svo hænsnabóndinn í stígvélunum, með ljótu vinnuvetlingana. Þessi kurteisa í pottinum og siðsama sundbolnum sem játar öllu sem betri segir (framsvið). Þessi dómharða sem heldur að allar pólskar konur sem flytja til Íslands séu fyrrverandi súludansmeyjar. Mamman og tengdamamman að gera vel við ungana og er svo dugleg að elda. Og svo þessi sem liggur og gónir (sefur?) á ekkert í sjónvarpinu, bara fyrir sig sjálfa (baksvið). Nú og svo auðvitað þessi sem horfir á afkvæmin og betri, ástaraugum að borða matinn sem hún sjálf hafði eldað. Og auðvitað verður að athuga að enginn verði útundan. Kötturinn og tengdadóttirin eru stundum i örlítilli hlutverkaspennu. Þau vilja bæði vera Roy. Það er þá sem að kötturinn er lokaður niðri í kjallaranum og þar má hann vera sinn eigin Roy en tengdadóttirin má sitja á besta stað í sófanum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2009 | 14:54
Kæru hænur.
Þið eruð skemmtilegar. Og svo ljómandi duglegar og fallegar. Étið og skítið alla daga eins og herforingjar. Og ekki er nú hátt á ykkur viðhaldsstigið. Nei, öðru nær og gestir og gangandi koma með blik í auga og þrástara á ykkur gáfuhænurnar mínar. Og þið svona skapgóðar og fallegar. Þið ættuð samt að huxa lauslega um þetta.... ÞIÐ VERÐIÐ AÐ FARA AÐ VERPA. Annars gætuð þið lent í "hænu-heven".
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.6.2009 | 12:55
Kæra ammæli.
Aftur ertu að nálgast -. Það er ekki að spyrja að því. Það er hægt að reiða sig á þig eins og nýja nál í gömlum heystakk. Ég ætla að halda uppá þig með örlítið minni stæl en síðast. Bara svona létt boð með kannski í mesta lagi örlitlu megrunarfæði og víndropa. Og að sjálfsögðu bleikum Muffins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2009 | 10:58
Kæru aðdáendur!
Mætti ég biðja ykkur að "kommennta" þegar þið lítið yfir þvættinginn úr mér. Ekkert endilega alltaf en kannski stundum.Jors trúlí. Eigöst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.4.2009 | 12:22
Kæri spánn.
Þú ert uppáhalds. Það er alveg klárt. Sko, tempóið og fólkið og maturinn og veðrið, þetta er bara eins og það á að vera. Að liggja á sólarströndu og lesa góða bók er lúxus. Skreppa svo á kaffihús og fá sér einn "Café Cortado" er algjörlega málið. Fara svo og fá sér Tapas um kvöldið og örlítið tár af köldu "cava". Rölta svo um hönd í hönd á milli staða og jafnvel setjast einhversstaðar. Panta á spænsku og verða rosalega hissa þegar allt kemur rétt. Rölta svo heim á hótel og sofna og vakna og finnast að allur heimurinn sé vaknaður líka og rétt ná á ströndina til að leggjast og lesa eftir að hafa stoppað og fengið örlítið tár af "café Cortado" og að sjálfsögðu croissant. Ferðast með lestum og strætóum til að heimsækja bæji og þorp og rétt svo rata heim. Fara á markaði og kaupa helst ekki neitt nema kannski krydd og handtösku og að sjálfsögðu eitthvað að borða og eitt kíló af fallegu nammi til að setja í krukka þegar maður kemur svo heim aftur. Fara í allar fallegu kirkjurnar og kveikja á 5 kertum fyrir börnin og fjölskyldur þeirra. Og 2 fyrir okkur og fjölskyldur okkar. Rétt ná svo aftur á hótelið til að sturta sig og fara út til að fá sér að borða. Var ég búin að nefna alla gömlu bæjina? Hvað með Pajellurnar? Eða jamon? Eða churros? Já spánn er uppáhalds.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2009 | 16:32
Kæra ég.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2009 | 13:22
Kæru þið.
Nú er ég bæði þung og þunglynd með misstór brjóst í þokkabót. Álagið á einni. Hvenær ætlið að heimsækja mig? Ætliði kannski bara að bíða þar til í jarðafarapartýinu? Ætliði að draga strá um Lilla? Eða ætliði að hafann til skiptis? Kannski ég fari að drekka á daginn. Sko áfengi. Vera heima, full og feit með misstór brjóst á teygðum bol með köttinn í taugabólgukasti sökum álags að þurfa að vaka svona á daginn. Hringjandi inn á útvarpsstöðvarnar ( sko ég, ekki kötturinn )og kvartandi drafandi röddu yfir ástandinu á nágrönnunum. Ætti ég að horfa á Leiðarljós? eða Nágranna? Eða Ophru? Ég verð svo syfjuð af verkjapillum. Þarf að leggja mig á 3 tíma fresti. 2 tíma í senn. Hvernig ætli það sé að drekka oní pillur? Ég er að lesa glæpasögu ég man varla hver er hvað og hver er dauður og hver ekki og hvort að búið er að finna líkin. Allavegna þegar ég vakna þá kíki ég lauslega undir rúm. Bara til öryggis. Svo fletti ég 3 blaðsíður til baka. Svo held ég áfram að lesa. Þegar ég verð búin að lesa þessa bók.... þá verður rúv búin að gera þættina.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)