4.6.2008 | 00:06
Kæra hús.
Mikið lítur þú nú vel út eftir jarðskjálftana. Það sér varla á þér. Rétt aðeins að það hafi tognað á þér. Ekki samt mikið. Þú ert fyrirtaks heimili. Ég huxa að nýju myndarammarnir verði nú komnir upp um alla veggi áður en langt um líður. Og að sjálfsögðu með gömlu myndunum í. Og hlutirnir sem brotnuðu verða notað í landfyllingu en aðrir keyptir í staðinn. Það eru ekki hlutir sem gera hús að heimili. Það er fólkið sem býr þar. Hér er góður andi ....og ég rétt svo stel þessu lauslega frá Gunnari... "Það er gott að búa í Hveragerði".
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.