8.2.2008 | 14:03
Kæra systir.
Enn ert þú í stökustu vandræðum. En leitaðir að svari á réttum stað. Hjá mér, innmúraðri og löggiltri systur þinni. Spurt er: "Ég á 19,466 vildarpunkta hjá Visa.Getur þú sagt mér hvernig ég á að nýta mér þá í ferð eða gistingu eða eitthvað. Ég vil bara fara eitthvað, erlendis að sjálfsögðu samt ekki til Færeyja".Ég bara segi að ekki ertu nú illa gefin né ófríð, enda talin frekar lík mér í útliti. Það er víst. Maður verður að leita svara, þar sem svör fást. Ekki þýðir að spyrja einhvern þaungulhaus með plattfætur og snúna ökkla um inniskó og nátthúfur. Og ekki er vitlegt að spyrja gesti á dvalarheimili aldraðra sjómanna um veðurfar í Himalajafjöllum í apríl. Maður spyr þar sem svara er að vænta.
Við þessum svakalegu frí-punkta vandræðum þínum eru nokkur svör. Nr: 1. Hvað með punkta nudd? Nr: 2. Þegar þú lokar augunum, sérðu þá punkta?Og sérðu þá þessa hérna punkta? Nr: 3. Er þetta punkturinn á eftir kommunni? Nr: 4. Eru þetta flokkaðir punktar?Nr: 5 Er þér eitthvað illa við Færeyinga? Nr: 6. Er punkterað á þér eða einhverjum sem þú lauslega kannast við, eða hefur mætt í kaupfélaginu hans Jóhannesar í Bónus??? Og talandi um það, verslarðu ekki allt í Bónus? Ég sá svo ægilega ódýran salernispappír þar. Og talandi um salerni... hvernig er þetta þarna hjá ykkur fyrir austan .... ég las einhvernsstaðar að það hefði fokið hús en salernið hefði eitt staðið eftir á grunninum.... alheilt. Og nýsturtaða niður. Og nú spyr ég... er þetta rétt. ps: hver var aftur spurningin hjá þér???. Hils Lilla. ppss. Ég vona að þú sért samt ekki með svona punkt
psps. Hérna er svo mynd af salerninu þvermóðskufulla. Það er nú meiri andskotans sóðaskapurinn að loka ekki salerninu eftir notkun. Á þetta fólk ekki foreldra.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.