Kæru jólasveinar.

Óskaplega hlakka ég nú til að fá alla pakkana frá ykkur. Ég er alveg viss um að fæ rosalega flottar gjafir í ár. Ég hef verið mjög stillt í ár.  Kannski er ég bara eftir allt að verða fullorðin. Það var þá kannski bara komin tími til. En alla vegana hef ég ákveðna hluti í huga þegar kemur að jólagjöfunum í ár. Sko...... frá þér Stekkjastaur, væri ég til í alveg rosalega flotta skó, kannski bara eins og 7 pör. Eitt par fyrir hvern vikudag. Og þú Giljagaur, er það ekki þú sem sérð um froðuna? "Hann faldi sig í básunum og froðunni stal"... bara allskonar freyðiböð og passar uppá gosið í gosinu.Og þú Stúfur, gjarnan eitthvað handa þeim sem minna mega sín. Ég veit að þú skilur þá svo vel. Þá ert það þú Þvörusleikir, gætirðu skúrað og skrúbbað og bónað svo vel að dugi næstu 2 árin. Pottaskefill..... ef þú sagir um að elda hollan og mat, þá daga sem ég nenni því ekki, en létir ekki sjá þig þá daga sem ég er í "elda stuði". Og þá Askasleikir, ert vanur að sleikja tré.... ef þú sagir um að trén í HvergerðiGerði væru falleg allan ársins hring og grasið grænt og vel snyrt. Heyrðu Hurðaskellir, nýjar hurðir í allt húsið. Líka í eldhúsið, gleymdu því ekki. Skyrgámur.... fullan gám af allskonar fallegum óþarfa takk. Já, Bjúgnakrækir! einn gám af allskonar bjúgum sem maður verður ekki feitur af og "lætur" mann ekki fá brjóstsviða. Gluggagægir.... ef þú sagir um að ég liti svona sæmilega út í framtíðinni. Pantaðir td. fyrir mig í "Ondeleringu" og þess háttar. Og sendir mér sms þegar ég ætti að mæta, mundu eftir því góði. Og þá að þér Gáttaþefur..... bara sjá um að ég lykti ekki illa og og og krem og svona vellyktandi sprey, takk. Bíddu.... já Kjétkrókur... þá að þér. Þú sérð um að ekkert brenni hjá mér á grillinu  og að allt smakkist kjötlega, eins og það á að  gera. Og eins að það sé alltaf til harðfiskur í ísskápnum, þú veist handa hverjum. Nú þá ert það þú Kertasníkir. Þú hefur mjög mikilvægt starf sjáðu til. Þú átt að sjá til þess að alltaf sé ljós í hjörtum og sálum manna. Ertu ekki klár á þessu?? Bíddu er þá eitthvað eftir?? Auðvitað!!! Grýla...... Ekki gefa mér neitt....Skilaðu bara því sem þú tókst.... ef einhver á hann  er það ég. Þú átt Lepp Skrepp Leiðindaskjóðu. Ólst hann upp sjálf og situr uppi með ófögnuðinn... Alveg ljómandi gott á þig.. Maður skyldi varast hvers maður óskar sér... svo mikið hef ég lært. Og þá aftur að ykkur jólasveinarnir ykkar....Jóla-Hils. ykkar Lilla


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband