Kæra húsmóðir.

Mig tekur það sárar en orð fá lýst að skrifa minningargrein um frábæra húsmóður og kærustuna hans Hafliða. En sú kona dó út um daginn. Eftir stendur kona sem er ekki kærasta neins og móðir 3 barna, ágætur starfskraftur og mikil vinkona þeirra sem hún það vill við hafa. Mikil eftirsjá er í kærustunni þar sem hún var einstaklega góður hlustandi og þoldi reiðilestur mjög vel, tók því eins og hvurju öðru hundsbiti. Það er líka sorglegur missir að tapa húsmóðurinni en samt ekki eins mikill. Af því að það er hægt að smyrja samlokur og panta Pizzur. Og svo er hægt að ganga í óhreinum fötum marga daga í röð. Nú eða kaupa ný. Og svo eru líka nýjar kærustur á hvurju strái. Margt höfum við "brallað" saman... eins og Bernessósu og étið marga osta. Og drukkið Dæjet kók. Ekki á ég nú von á að ég éti osta með nýju kærustunni hans Hafliða ef einhver er.... hvað þá að ég búi til með henni Bernes. En hitt get ég sagt ykkur að með kærustunni hans heitinni ætla ég að éta oft og mörgum sinnum. Bæði það sem hún og ég búum til og svo líka það sem er hægt að kaupa á veitingahúsum. Ég veit ekkert um það hvort að Hafliði ætlar að éta með henni Bernes... en hitt get ég sagt ykkur... að dýr yrði Hafliði allur.

Hilsen


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásta Björk Solis

ynnilegar samudarkvedjur yfir missi thinum.

Ásta Björk Solis, 18.10.2007 kl. 17:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband