Kæra Elli.

Mikið hefur nú verið gaman að kynnast þér. Og takk fyrir allar ábendingarnar, svo sem hrukkur, sigin brjóst, sigin maga og togaðan rass. Verki og vind, sjóndepurð  og annað sem ég man ekki eftir að hafa beðið um. En maður getur nú ekki alltaf verið að kvarta. Það er svo sem fátt sem hægt er að kvarta yfir. Kannski helst veðrið og peningaleysi. Ekki það að ég sé á skulda-horriminni. Nei, það er öðru nær. Ég  bara get ekki eytt eins og ég vil. Langar í allt. Nýtt hús, en vil ekki skulda fleiri miljónir. Ný húsgögn, en vil ekki eyða miljón. Nema þá í útlandaferð. Þá er ég alltaf til í að skuldsetja mig upp fyrir eyru. Svo langar mig í hund, en þá get ég ekki verið alltaf í útlöndum. Þetta er alveg ferlegt. Ég held að ég sé með valkvíða. Ég þekki fólk sem væri tilbúið til að sverja að það sé mynd af mér við valkvíða í orðabókinni. En ég þekki engan sem segir að í  sömu bók sé mynd af mér við orðið "gömul" .... og það getur maður þakkað fyrir. Hilsen.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kæra frænka,

gaman að lesa bloggið þitt

Kveðja frá hass Sverige 

Jóna frænka þín (IP-tala skráð) 12.10.2007 kl. 10:31

2 identicon

Sílíkon í brjóst og rass og svo kaupirðu nýtt hús og húsgögn í útlandinu...þar sem að þú ert alltaf tilbúin til að spreða í útlöndunum ;) híhíhí!

Spánardrósin (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 08:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband