28.8.2007 | 11:08
Kæri Andi.
Hefurðu yfirgefið mig? Ég er svo andlaus. Ekki samt andstutt eins og í gær þegar ég var í leikfimi.... nei þá var að líða yfir mig. Núna er ég með bómull í hausnum og nenni ekki að vera til. Í gær var þetta meira svona eins og hnífur í maganum og hjartað hótaði að stinga af. Og svo hausinn að springa. Ætli það hafi komið fyrir? Að fólk hafi dáið úr leikfimi? Ég held að ég geti ekki dáið úr Rope-yoga. Ekki einu sinni þó að ég reyndi. Eða jú, það eru bönd!!! En ég er alveg viss um að ég gæti dáið úr ofáti. Það sem sagt gengur ekkert í megruninni. Úff. Allavegana þá veit ég að ég verð ekki mjórri þegar ég kem frá Barse. Það er sko alveg á hreinu. Og svo er sumó um helgina. þá ætla ég að hafa Foj-gras... eins og Lýður segir. Bara ekki í morgunmat. Svo ætla ég að vatnslita svolítið og búa til einn krans og tína sveppi og ber ef hægt er. Svamla í pottinum og hafa það huggó á meðan Lebbi spilar á gítar.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.