Drykkjó.

Hvernig lýst ykkur á að hittast 15 eða 16 ágúst og fá okkur snæðing á  Þremur frökkum hjá Úlfari.Það eru allir svo uppteknir að ég held við náumst ekki saman fyrr. Meðfylgjandi er matseðillinn:Allskonar fiskur og skelfiskur og glænýjar kartöflur með og ekki án smjérs.Kolhrár hvalur í uppístungu fyrir mat.... með Engifer og soja. Tvö kg. þverskorna soðna ýsu með hömst.... hömst.... hömsum.Hægt er að fá bara einn síðan frakka af Úlfari, þrjá stutta franska kossa, franskt brauð með Bernes-sósu,einn stuttan hjá Úlfari sjálfum, þrjá langa hjá frönsku frökkunum með og án Bernes, einn síðan Úlfar löðrandi í Bernes, Einn líter Bernes með smá af frönskum og fransktbrauði, Eitt kíló Bernes með þremur fönskum kartöflum og þremur sneiðum af frönsku-Úlfabrauði,með þessu er hægt að skutla í sig frönsku eðalvíni í flöskuvís. Og drekka 2 lítra af rót-sterku og sjóðheitu  kaffi með desertinum til að kaffið nái að hræða hitaeiningarnar úr rjómanum.Í forrétt  er hægt, fyrir þá sem það vilja, að skutlast í göngutúr um hverfið. Ég mæli með ferð um bakgarða-göngustíga... og almennri legu á gluggum og grindverkjum hjá grunlausum íbúum miðbæjar.Hrein snild. Hilsen.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildur Tryggvadóttir Flóvenz

Mikið er gott að við grunlausu miðborgarbúarnir vitum hvenær er von á ykkur í forréttagönguferð um bakgarðagöngustíga. Við verðum þá undirbúin undir gluggagæjur!

Hildur Tryggvadóttir Flóvenz, 31.7.2007 kl. 15:21

2 identicon

Heyrðu góða mín ég hélt að við hefðum borðað mánaðar matarskammtin um helgina.Og nú væri bara átak framundan?

Anna (IP-tala skráð) 1.8.2007 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband