27.7.2007 | 13:41
Kæra offita.
Mætti ég náðarsamlegast biðja þig að yfirgefa mig hið snarasta. Og ef ekki náðarsamlegast þá bara drullaðu þér burt. Ég hef fengið nóg af þér. Þú hefur algerlega og gérsamlega yfirtekið á mér vöxtinn. Sem var svo sem ekkert til að hrópa húrra fyrir áður. Þú hefur breytt mittinu á mér í risavaxna rúllukragapeysu á þvottabretti með Lúx sápustykki. Upphandleggjunum í Bingó-spjalda uppréttara. Rassinum á mér í pitsu með appelsínuberki. Hakan hefur fætt af sér aðra höku sem hefur aftur fætt af sér enn eina hökuna. Brjóstin á mér eru farin að skyggja á lyklaborðið og.... þegar ég sef þá þrengja þau að lungunum í mér. Ég get notað Bikiní-ið mitt sem fortjald við stærstu gerð að hjólhýsi án nettengingar. Nú bið ég þig barasta....ekki fara að benda á einhverja aðra sökudólga í þessu mál. Í alvörunni. Ég á enga sök á þessu. Ég svona rétt narta í eina og eina steik. Gúffa í mig einni og einni máltíð á KFC með frönskum og kokteilsósu. Ég borða alltaf salat með næstum öllum osti og set sveppi í næstum allar rjómasósur. Rauðvín drekk ég ekki nema með ostum og vínberjum í góðra vina hópi eða þá í slæmum félagsskap. Snakk og popp borða ég ekki nema þá að rækjusalatið sé búið. Og svona mætti lengi telja. Ég borða hollan mat úr öllum fæðuflokkum. Og svo drekk ég vín úr öllum heimsálfum líka. Hvítvín, Rauðvín, Rósavín og Kampavin. það er mikil fjölbreyttni í því. Cabernet Franc Cabernet Sauvignon Chardonnay Montepulciano Pinot Gris (eða Tokay-Pinot Gris) Pinot Noir Riesling Semillion Syrah (eða Shiraz) Tempranillo og ef allt annað bregst þá amerískt Zinfandel. Svo eru náttúrulega héröðin allt önnur saga..... Allavegana... ertu að skilja mig?
Hilsen.
ps. ég skrepp núna að kaupa mér sundbol í Kringlunni. Ég reikna ekki með þér í þann bol.
Athugasemdir
Kæra offita,
Ef þig vantar ferðafélaga er mín offita á lausu, henni er frjálst að fara svo endilega skipuleggið nú eitthvað saman og skellið ykkur í frí.
Tóta (IP-tala skráð) 30.7.2007 kl. 11:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.