18.7.2007 | 10:29
Bréf til mín , frá mér.
Kæra ég. Hvernig er þetta með þig, þarftu alltaf að vera með túllann opin. Geturðu ekki einu sinni, bara einu sinni, lokað á þér þverrifunni? Hver dó og gerði þig að útvarpi allra landsmanna? Ég veit að það getur verið erfitt þegar allir hinir eru ekki á sama máli og við. En sko .... kommmon. Við vitum báðar að dj... væri nú lífið auðvelt ef við réðum öllu. Það myndi Rokka. Við værum nú fljótar að enda öll stríð, leggja svo vatn til Afríku og senda Kínverjum og Indverjum ógrynni af klósettpappír. Já, svo þyrftum við nú að gera eitthvað útaf þessu veseni í múhameðstrúarfólki. Já og Ameríka fengi gervigreind. Er þá ekki búið að leysa svona helstu vandamál? Æji já, svo þyrfti að sauma aftur þverrifuna á honum fyrrverandi-fyrrverandi og svo rassgatið á fyrrverandi. Þá held ég að þetta væri bara nokkuð gott. Já, svo myndi ég láta taka allar hitaeiningar úr góðum mat og láta setja þær í vondan mat. Banna vont rauðvín og lögleiða fótsnyrtingu á 2 mánaða fresti. Og nudd og svo myndi ég láta stranglega banna konum að skúra. Og svo myndi ég láta einhvern finna upp þvottavél sem hengir sjálf upp og raðar fallega inní skápa. Heyrðu já, og pening sem eyðist ekki takk, nema honum sé eytt í vitleysu. Ef einhver myndi vilja eyða í vitleysu þá væri ekkert annaða að gera fyrir viðkomandi en að kaupa sér smá pening fyrir peninginn og eyða svo þeim pening í vitleysuna. Já.... þetta er nú svona það helsta.
Athugasemdir
Hehe, úff hvað lífið væri auðvelt ef þú fengir að ráða... svo auðvelt! Þú færð pottþétt mitt atkvæði sem heimsyfirráður!
Kristín Henný Moritz, 27.7.2007 kl. 13:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.