27.6.2007 | 16:55
Kæri Guð.
Þetta er ég hérna. Var svona að velta fyrir mér hvort þú gætir litið til með mér. Sko, ég ætla ekki að biðja um pjening eða gimmsteina eins og þegar ég var lítil. Ekki einu sinni þó ég hafi keypt Víkingalottó áðan. Ekki aldeilis. Ekki misskilja mig, ég er mjög þakklát fyrir allt sem ég á. Hafirðu sent mér eitthver mótlæti hef ég reynt allt sem ég get til að læra á því. Æji, ég er í áhyggjukasti. Gætirðu passað strákana mín? Og kannski skammað þann yngri aðeins? Ég er ekki að biðja þig að slá hann í höfuðið eða senda honum heimsendir á nokkurn hátt. Kannski bara næst þegar hann ætlar að borða saltkjöt og baunir, að seinka honum í matinn ( feldu bara lykilinn af bílnum ) og láta hina klára allt nema einn feitan síðubita. Úff, hann yrði að vísu alveg brjál... en það er ekki eins og ég yrði fyrir því. Geturðu ekki látið hann "fatta" af hverju hann er að missa?? Ég sakna hans svo hræðilega. En heyrðu, úr því að ég er með þig á línunni, passaðu þá alla í fjölskyldunni minni og vini og vandamenn. Sáldraðu hamingjudufti yfir alla sem vilja það og lukkudufti á þá sem það þurfa. Og í öllum bænum passaðu mig líka rosalega vel, og þá helst fyrir mat. Geturðu læst matinn inni og hennt lyklinum í átta daga fjarðlægð.Takk Takk ég vissi að ég gat reitt mig á þig.
ps. ég fann þessa vísu á skabbalút, ort af Norninni:
Fleyginn tek og tæmi hann.
trega ekki daginn þann.
Taugarnar styrki.
í svefninum kyrki
fíflið, minn fyrrum mann.
.Hilsen.
Athugasemdir
Ágústa mín,
þú átta svoooo flotta stráka og það veit hann þarna upp mjög vel, og lítur sérlega vel eftir litla þráa-púkanum þínum.
Vísa er góð
stóra.
stóa systir (IP-tala skráð) 28.6.2007 kl. 14:45
Nú já svo þetta ert þú...
Ólafur Örn Ólafsson, 4.7.2007 kl. 17:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.