14.6.2007 | 18:12
Svar við bréfi frá sólbakaðri Systu minni.
Kæra systir.
Ekki veit ég nú um hvar þú ert brún, en hitt er þó víst að ég vona og ligg á bæn með að þú sért ekki brún á milli rasskinnana. Það, hef ég heyrt, getur verið alveg andskoti vont. Húsráðið við því , ef svo er, er að nota meiri pappír. Og helst ef á að duga, eftir allar þurftaferðir. En hitt veit ég að ég er alveg eins á litin og Síríus-súkkulaðilengja, án hnettna. Er samt með svolitlar rendur, aðalaga á spikinu á mér framanvert. Minnir doldið á súkkulaði sem hefur ofhitnað í sól. Hendurnar á mér eru eins og þær hafi ekki gert handtak í hálfan mánuð. Sem er náttúrlega rétt, ef frá er talið allur krem-áburðar þrældómurinn. Sem er til varnar því að maður verði hrukkóttur eða það sem verra er, rauður eins og írskur kommi. Það ku vera agalegt. Það veit ég fyrir víst. Að vísu ekki frá fyrstu hendi, en annari. Ástkær ástmaður minn á það til að verða þannig ef hann fer út óvarin. Og það sem er skrítnast er að þessi roði veldur allskonar skapsveiflum. Ekki samt alvarlegum. Ég hef ekki orðið vör við neina breytingu á skapi mínu við það að ég hafi brúnkað. Það er þó helst að ég staldri lengur við spegilmynd mín. Sem er að ég tel þessa dagana, ægifögur. Það getur að vísu átt aðra útskýringu, jú sjáðu til ég er orðin aðeins eldri og þá góða mín, er það þetta brjálæðislega flotta plott hjá móður náttúru. Hún lætur mann sjá verr. Alveg furðulegt. Ef þú hefur einhverjar aðrar skoðanir á þessu máli er þér velkomið að koma hérna til mín á sunnudaginn kemur svona um 17 hundruð leytið og viðra þetta svona með þér í hljóði á meðan þú raðar í þíg afmælismatnum og horfir á mig opna pakkana frá þér og öðrum í þessari fjölskyldu sem þykir vænt um mig. Vona að þetta bréfkorn rati á þig í góðum sköpum og að þú eigir ekki eftir að eiga mann sem hrýtur alveg eins og brjáluð eymreið með slitin brjóstahaldara á balli með með Ingimari Eydal og Helenu í Sjallanum, á meðan sannleikurinn svoleiðis þýtur frammúr fingrunum á þér við lyklaborðið. Eða jú, ég bara vona það. Allavegana ef hann er jafn vænn og minn. Ég hef heyrt ( þó ég heyri næstum ekkert orðið sökum hrotna ) að það sé hægt að Jóga sig frá þessu. Veit samt ekki.
Jæja. Sé þig á sunnudaginn. Og ef ekki, sendu mér þá bara annaðhvort pjening eða Gimmsteina í ammælisgjöf.
Lofjú
Lilla
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.